FORSÍÐA

UM FJÁRSTOÐ

MARKMIÐ

STARFSMENN

ÚTVISTUN

SPURT OG SVARAÐ

FRÉTTIR

HAFÐU SAMBAND

Tenglar

SKJALAGÁTT



Viltu tilboð í þjónustu!!!

Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar

Gerðu það sem þú gerir best - það gerum við

Sérhæfing í verkferlum á fjármálasviði
Fjárstoð er eitt stærsta fyrirtækið á íslenskum markaði sem sérhæfir sig í útvistun verkferla á fjármálasviði.  Þjónusta fyrirtækisins felst í framkvæmd allra þátta sem heyra undir fjármálasvið fyrirtækja, færslu bókhalds, afstemmingum, launavinnslum, reikningagerð, greiðslu reikninga, gerð ársreikninga og skattaframtala, mánaðar-,  bráðabirgða- og árshlutauppgjöra, framsetningu lykilstærða í fjárhag, áætlanagerð ofl.

Beindu kröftum þínum að kjarnastarfsemi þinni
Fjárstoð byggir starfsemi sína á þeirri staðreynd að sífellt  fleiri vel rekin fyrirtæki telja hagsmunum sínum betur borgið með því að einbeita kröftunum að kjarnastarfsemi sinni - að því einu sem skapar bein verðmæti fyrir fyrirtækið og hluthafa þess - en láta sérhæfða þjónustuaðila annast rekstur stoðdeilda.

Betri upplýsingar um lykilstærðir í rekstri
Starfsfólk Fjárstoðar hefur áralanga reynslu af framsetningu fjármálaupplýsinga. Framsetningu sem stenst strangar kröfur nútímastjórnenda um að hafa á hverjum tíma fullkomið yfirlit yfir mikilvægar rekstrar- og efnahagsstærðir fyrirtækja sinna.  Framsetning upplýsinga byggir annars vegar á stöðluðum reglubundnum yfirlitum um lykilstærðir og hins vegar á sérstökum skýrslum sniðnum að þörfum viðskiptavina hverju sinni.

Lægri kostnaður - meiri gæði
Með því að útvista þá þætti í rekstri sem ekki teljast til kjarnasviðs hafa viðskiptavinir okkar notið aukinnar hagkvæmni við framkvæmd þeirra verkefna sem heyra undir fjármálasvið.  Að sama skapi eru það markmið Fjárstoðar í samningum við  viðskiptavini að, lækka kostnað við rekstur stoðdeilda á fjármálasviði, betri og skilvirkari verkferla, aðgang að sérfræðiþekkingu og víðtækri reynslu fagfólks, fagleg vinnubrögð og  aðferðir sem samræmast ýtrustu gæðakröfum.

Jól og áramót

Árshátíðarferð

Fjárstoð styrkir Barnaheill

Nýja síðan í loftið

Fjárstoð flytur


júlí 2010
s m þ m f f l
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31



Könnun

Ertu komin/n í sumarskap?
 
    Jahá
    Er að detta í gírinn
    Nei
Skoða niðurstöður

Fjárstoð ehf. | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 556 6000 | Fax: 556 6001 | fjarstod@fjarstod.is

Vefsmíði: Tónaflóð